Eitt af því sem ég hef verið að uppgötva síðustu daga er að ég er ekki menningarleg. Ég hef verið að líta aðeins í kringum mig og ég hef hreinlega komist að því að ég veit ekki hvað Sigurjón Kjartans var að tala um í morgun, frekar en að ég viti hvort að það eigi að snjóa á morgun eða vera slydda. Ég hef ekki hugmynd um hvað Dabbi hefur verið að röfla undanfarið! Það er það sem allir virðast vita.... en ekki ég. Þetta er bara ekki eiginleiki sem ég bý yfir! Ég kveiki ekki á útvarpinu til að hlusta á veðurfréttirnar, ég vafra ekki á netinu og skoða hvað sé í fréttum á mbl.is eða visi.is. Ég hef ekki hundsvit á því hvað er að gerast í kringum mig. Og hana nú! Ég er bara að grúska í mínum bókum, mæti í vinnuna, skelli mér í World Class þegar ég er í stuði og hangi með vinum og kunningjum. Ég borða matinn minn og sef þegar ég er þreytt. Alveg finnst mér ég ekki vera að funkera rétt í þessum heimi. ........og alveg finnst mér ég verða að bæta úr því. Jæja, ætla þess vegna að reyna að vera svolítið menningarlegri en mér hefur tekist að vera hingað til. Samt sem áður, ég ætla að sökkva mér niður í líffærafræðina svo ég þurfi ekki að vakna snemma í dag til að klára verkefnið sem ég er að bisa við að gera (... ég er jú á næturvakt og sef í dag.....mmm.. hvað það verður gott). Læt heyra í mér seinna. Verð á næturvakt næstu helgi. Svona er lífið mitt...........EKKERT að gerast! posted by xxx @ 07:11
Queen of Denmark
....sögur úr danaveldi
Previous Posts
- Hæms! Næturvakt aftur og enn er ég ekkert búin að ...
- Vá hvað ég er ekki að fatta hvernig á að gera alla...
- Hæ hæ! Það er ekki eins og eg kunni eitthvað að bl...
Gestabók/Gæstebog
Nokkrar staðreyndir
Myndir/Billeder
Á götum Árósa
Aðrir bloggarar
Litlu krílin
Nauðsynleg lesning
Skólatengt
Andlegt
þriðjudagur, nóvember 19, 2002
