„Heilsuvöruhóra?”
Ég er „heilsuvöruhóra”!
Já þetta eru stór orð, ég veit, en ég komst að því um daginn að þannig er það bara. Ég hórast svoleiðis á milli fæðubótarefna þessa daganna og hef það bara andskoti gott. Ég er náttúrulega í aðhaldi, það þarf nú ekki að minnast á það, og því fylgir alveg ótrúleg manía á allt sem gæti hjálpað mér á einn eða annan hátt í baráttunni við kílóin. Ég vonaði lengi vel að ég væri ein af þessum sem ákveða bara að snúa blaðinu við og vinna svo einhver verðlaun fyrir góðan árangur…viðtal og forsíðumynd og allt tilheyrandi… en ég verð víst að horfast í augun við það að það er ekki ég. Ég er þessi sem er enn að bíða eftir því að einhver annar finni einhverja „lausn í dós” á mínum vandamálum….þá þarf ég ekki að hafa áhygjur af þessu meir. Og ég er búin að prófa ALLT!! Og er tilbúin að hlaupa til og prófa ef eitthvað nýtt kemur á markaðinn….ég segi samt engum frá því og fussa og sveia með hinum þegar umræðan kemur upp…en það má eiginlega segja að ég sé orðin sérfræðingur í fæðubótarefnum og allskyns heilsvörum en drottin minn dýri, ég fer nú ekki að flýka því á almannfæri…það þolir engin þetta svokallaða Herbalið og ég ætla nú ekki að láta setja mig í flokk með þeim…fordómar fordómar...er heldur ekki að selja neitt bara búin að prófa allt. Sannleikurinn er sá að ég á Herbalife inn í skáp, ég á Leppin, ég á Nature´s Own og ég á Myoplex…nefndu það…ég á það…svo ég tali nú ekki um allar pillurnar og fíneríið sem á að hjálpa mér á þennan eða hinn háttin.
Sem sagt: Heilsuvöruhóra….ðets mý! Og ég er ekki að segja „hóra” á einhvern neikvæðan hátt heldur þvert á móti. Þetta á miklu betur við mig…það hefur ekki gengið upp hingað til að vera halda sig við einn dúnk þannig að nú held ég við marga og „hórast” um á milli þeirra! Það er nefnilega þannig með mig eins og svo marga aðra að þegar ég var búin að borða eitthvað duft í marga daga þá fékk ég ógeð og gat ekki hugsað mér að drekka þennan óþvera meir….og hvað gerði ég þá…ég hætti….og hvað gerðist þá…jú, ég fitnaði! Nú er svo komið að skáparnir hjá mér eru orðnir eins og vörulager fyrir heilsuvörur, ég luma á öllum vörumerkjum og tegundum… andvirðið sjálfsagt eitthvað á annað hundrað þúsund ef allt er tekið með….svo ég hórast bara á milli tegunda dag frá degi… þá kannski tekst mér að klára lagerinn og missa nokkur kíló wæl æm ettit! Ég er alveg sannfærð um það að allt eru þetta góð fæðubótarefni en það er bara ekki alveg það sem ég get lifað á lengi í einu og hvað þá það sem eftir er….en ég er tilbúin að borða eina duftmáltíð á dag…þá kannski held ég þetta út og verð mjooohóóó…en það verður ekki þessu dufti að þakka heldur mér og engum öðrum… því það er jú ég sem þarf að laga þetta og drekka….og það eitt og sér hefur lítið að segja. Það er nefnilega svo kaldhæðnislegt að með öllu þessu dufti og pillum þá fylgir alltaf bæklingur og í ÖLLUM stendur: „….og með hjálp þessarar gæðavöru, réttri hreyfingu og hollu mataræði, nærðu árangri!” Jeje….semsagt, efnin virka ekki uppi í skáp og heldur ekki nema ÉG borði hollan mat, stundi reglulega hreyfingu og drekki 2-3 litra af vatni á dag….það er bara þannig!! Þetta er ekkert flókið…allt í lagi að nota hjálpartæki…en þetta er SAMT bara svona: ég borða hollt, ég hreyfi mig og drekk vatn…..og svo er það að sjálfsögðu sólheimaglottið allan hringinn því það er svo dásamlegt og gott….svei mér þá, ég ætti nú að geta þetta, ikke? Jú ó jú, og ég er að gera þetta núna….. liggaliggalái….ég er svaka dugleg…klapp á öxl og knús á kinn!!
„Bæ ðö pávör off greyskoll….Æ HEF ÐÖ PÁVÖR!!!”
...hafidi heyrt thad betra?
Femin.is posted by xxx @ 19:13
