sunnudagur, júní 08, 2003

þá er ég komin til Íslands. Vaknaði í morgun og byrjaði að tala dönsku vid Krissa, fannst allt í einu ad madur talaði dönsku í Reykjavík og íslensku fyrir norðan. Eins finnst mer geigvænlega erfitt að venjast þessu takkaborði, "ð" og "þ" vilja alls ekki vera með. Ég djammaði í gegn í gær. Það var nottla risastór og skemmtileg afsluttningsfest í skólanum med tilheyrandi verðlaunaafhendingum og ræðuhöldum. Ég rústadi keppninni um "kvk, fyllsta fyrirbærið", fékk horki meira né minna en 70% atkvæða. Alls ekki slæm frammistaða þar, sérstaklega þar sem ég hef alls ekki verið neitt svakalega oft full. Fékk atkvæði aðallega út á það að hvað ég verð geðveik þegar ég kemst í glas. Síðustu skiptin hef ég haldið mig sæmilega á mottunni. Nú svo fékk ég önnur verðlaun sem "Beauty Queen" skólans. Það kom mér á óvart. "Stöd" skólans var Karsten og hann fékk líka flest atkvæði fyrir flottasta rassinn. Það fittar ágætlega saman. Mér finnst hins vegar hálffyndið að danirnir hafi kosið mig "Beauty Queen" en einnig mesta fylliraftinn- eitthvað sem mér hefur aldrei þótt eiga saman. Þar sem ég fékk svona mikið áfengi í verðlaun sá ég mér ekki annað fært en ad hrynja bara í'ða. Nú svo ég gerði það. Ég var búin að pakka öllu niður svo ég gat djammað alla nóttina. Nokkrir hardcore danir vöktu með mér... aðrir fengu sér hænublund og vöknuðu til að fylgja mér út á lestarstöð. Ég tók jú lestina kl 6:37. Hver haldiði svo að hafi komið trítlandi í lokin... Ole Brjunsberg skólastjóri. Hann kom á lestarstöðina og kvaddi okkur Maríu (já ég fékk rússnesku vinkonuna mína til að taka lestina með mér þrátt fyrir það að hún fljúgi ekki til Moskvu fyrr en í dag. ... alltaf miklu "hyggeligre" að fylgjast að). Mér fannst klikkað erfitt að kveðja alla. Ég var vel í glasi þegar ég plantaði mér í lestina...hm..hm... Ég kvaddi Maríu í Köben og hún gaf mér rússneskan vodka að skilnaði.. I wonder..!! Þegar ég kom á Kastrup var farið að renna svolítið af mér. Mér tókst að dotta aðeins í fluginu, ekkert að ráði samt. Mér er alltaf illa við að fljúga. Flugstórinn valdi líka að róla sér í lendingunni í Kef, ég var ekki að fíla það. Mér tókst að dotta aðeins en skellti mér svo í ammli til Villa í Ársæli. Ógsla gott að sjá alla aftur. Loksins gátum við Hulda, Finnur og Finnur og Arnar tekið smá sving. Við enduðum inni á Sólon í lokin. Nú svo rakst ég á Selmu frænku.. hef ekki hitt hana í mörg hundruð mánuði. Einnig labbaði ég inn í Arndísi þegar ég ákvað að nú væri ég búin að fá nóg eftir 40 tíma vöku og djamm. Hún var í einkarskemmtilegu ástandi. you go girl!! ... Ég labbaði inn í fullt af fólki í nótt..... það góða við að djamma í Reykjavík.

posted by xxx @ 14:08