fimmtudagur, nóvember 20, 2003

Fólk er snemma í jólahugleiðingum þetta árið.. tjah eins og öllur önnur ár. Mér til mikils ama sá ég að það stefndi allt í "uppsölu" á ódýrustu flugfargjöldunum norður. Svo ég pantaði eitt. Jæja þá þarf ég ekki að sitja í bíl í 6 tíma og láta mér leiðast. Ein klst í flugvél er alltaf skárri. Var samt komin með alla anga út um allt og búin að fá fullt af kannski förum.... en maður stólar ekki á kannski er það? Svo Flugfélag Íslands er málið. Miiiikið rosalega hef ég EKKERT að segja. Maður verður svo heiladauður af því að djamma ekki hverja helgi! .. og svo er talaðu um að maður virki heilann með lestri... og alkohól hafi neikvæð áhrif. Ég er svo sannarlega að sanna að svo er ekki og hana nú.

posted by xxx @ 19:45