fimmtudagur, desember 19, 2002

....jæja! Allavega það sem ég vildi sagt hafa er einfalt! ÉG ER BEST! Eftir morgunvaktina í dag skellti ég mér í kringluna og var búin að versla allar jólagjafir kl 17:30 í dag, einn og hálfur tími og geri aðrir betur. Búið og gert. Mátti svo sem ekki seinna vera, fer norður ekki á morgun heldur heldur hinn. Trallallallalalaaa. Þá eru það jólakortin, þau eru stærri höfðuverkur. Ég meina; í fyrsta lagi gleymi ég alltaf einhverjum... og þar að auki veit ég ekki hvar þetta fólk mitt á heima. Allir eru alltaf að flytja (ég er svo sem ekkert skárri, búin að flytja 3 eða 4 sinnum á þessu ári). Það er LEIÐINLEGT að skrifa þau. Geri það kannski á næturvaktinni á morgun.... puh. Það er verið að bóna gólið hérna í kringum mig, er í Sunnuhlíðinni. Mér finnst bón leiðinlegt. Allir gluggar opnir.. MÉR ER KALT! Ég gæti orðið veik.VEIK!
Oh, ég hlakka til að fara að sofa í fyrramálið.....mmm... Hey svo er gellan ég .. já, hún ég að fara í bláa lónið á morgun. Í svona líka gatslitnum sundbol. Hann er svo eyddur á rassinum og brjóstunum að ég gæti allt eins klippt þessi stykki úr ... ég þarf sundbol. Ég skoðaði sundboli um daginn og fann engan. Jú auddað eru svo sem sundbolir til út um allt. En bara neon bláir og bleikir... og einhver pínubikiní. Ég þoli ekki skæra liti, ég þoli ekki BLEIKA liti og ég er allt of spéhrædd til að fara að dilla mér í einhverju bikiníi. Ég á ekki heima á sólarströnd! Ég lærði í New York hvað hlírabolir og stuttbuxur eru. En það var líka 30 stiga hiti í apríl og maí. Ég var að kálast. Labbandi með kerru á Manhattan.... að sálast úr þorsta og svita. Oh hvað mig langaði að stinga mér í sjóinn í Battery Park. Og ekki var það skárra í Iowa. Hiti fer í skapið á mér, hiti gerir mig pirraða. En ég er samt ekki á móti sól og sumri! Engan veginn. Set bara mörkin við 20 gráðurnar. Þar er ég á útopnu. Ég hef samt sem áður sætt mig við stuttbuxurnar og ok, hlírabolinn líka. Þau eru vinir mínir í dag. Sérstaklega í útlöndum. En bikiní.... þar á ég langt í land. Yfir og út!

posted by xxx @ 02:07