Ollræt ég hef verið að pæla. Er það eitthvað fyrir mig að keyra um með barnavagn um bæinn, skipta um bleyjur og kaupa barnamat??(???) Alltaf hef ég komist að sömu niðurstöðu; nei! Ekki ennþá að minnsta kosti. Kannski eftir 10 ár. Þegar mamma var á mínum aldri var hún búin að eignast mig. Þegar hún var tuttugu og tveggja var hún komin með hús, bíl, mann og 2 börn. Hún var búin að móta lífið sitt. Stundum dauðöfunda ég svoleiðis fólk sem er "settled dán" og bara nokkuð sátt við sitt. Ég get engan veginn ákveðið hvar í heiminum ég vil búa. Hvað mig langar að læra - jú ég hef vissar hugmyndir og ég ætla mér að læra nógu mikið ef ég mögulega get. Hvort mig langar að eignast börn. Síðustu 2 árin, síðan ég kláraði menntaskólann hef ég lifað í svo miklu rótleysi!!. Mér er búið að takast að búa á 5 stöðum, í þremur löndum. RVK-NY(manhattan, bronx)-RVK-HADSTEN-ÖXARFJÖRÐUR (með viðkomu á Húsavík). Allt dótið mitt er pakkað niður í pappakassa og þeir eru dreifðir.... skipt bróðurlega milli Húsavíkur, Reykjavíkur, Öxarfjarðar og Århus (já vinkona mín í Århus geymir þó nokkuð drasl fyrir mig-hversu undarlegt sem það virðist). Þetta tímabil er samt búið að vera ógeðslega skemmtilegt. Ég hef kynnst alls konar fólki... og upplifað ótrúlegustu hluti. Svo er ég hérna á Húsavík núna. Á hverju götuhorni eru skólasystur mínar með kúlu... Mér finnst allir vera búnir að planta einu barni!!!! Og nú fer ég að hugsa; afhverju get ég ekki gert mér neina hugmynd um hvað það er sem ég vil þegar stelpur tveimur og þremur árum yngri en ég eru að eiga börn. Það er jú mikil ákvörðun að eignast barn. Og ég get fjandakornið ekkert ákveðið. Einfaldar ákvarðanir (nám-háskóli-land) sem varða eingöngu mitt líf. Eitthvað sem ég get alltaf hoppað út úr. KOMMON! Best að henda sér bara út í djúpu laugina! posted by xxx @ 01:53
Queen of Denmark
....sögur úr danaveldi
Previous Posts
- Blessha! Þá er ég komin á fullt í þjóðgarðinum mín...
- þá er ég komin til Íslands. Vaknaði í morgun og by...
- Gærkvøldid endadi med alsherjar "hygge" ut i gardi...
- Æji mig langar mest af øllu ad hrynja bara ída!! T...
- For satan og helvede! Eg er buin ad neydast til ad...
- ......her sit eg, strik svitann af enninu og andva...
- ... gæti verid ad eg hafi farid adeins yfir striki...
- Muhahahahaaa! Eg sat i minum mestu makindum a Hads...
- ja .. og afthvi ad eg er komin i sumarskap ætla eg...
- Var ad koma fra Kaupmannahøfn! Buin ad øskra ur me...
Gestabók/Gæstebog
Nokkrar staðreyndir
Myndir/Billeder
Á götum Árósa
Aðrir bloggarar
Litlu krílin
Nauðsynleg lesning
Skólatengt
Andlegt
laugardagur, júní 21, 2003
