mánudagur, febrúar 02, 2004

Jæja vinir mínir nú er geðveikin byrjuð. 2.semester byrjaði í dag og hér sit ég yfir neuroanatomibókunum. Áður en ég settist niður við lesturinn hljóp ég út í Bilka og keypti heilan heilling af vítamínum. Ég hef nefnilega alveg óstjórnlega mikla trú á vítamínum. Sumir vilja meina að sú trú gangi út í öfgar. En ég blæs á allar svoleiðis staðhæfingar. Ég er nefnilega þannig úr garði gerð að ég missi matarlystina þegar ég er stressuð.. .. nú og þar sem ég er að fara inn í erfiða önn verður maður að hafa öll þau efni í kroppnum sem eiga að vera þar. Svoleiðis að nú hrúga ég í mig vítamínum og stuðið hefst... og ef þetta verður ekki stuð... kem ég allavega ekki dauð úr næringarskorti til Íslands í sumar. Og hana nú.

posted by xxx @ 20:26