sunnudagur, maí 23, 2004

Ég mætti hin galvaska í medicinerhuset i morgun. Grá og mygluð, já þreytan farin að segja til sín. Kristina átti afmæli í dag. Þegar ég hoppaði til hennar þar sem hún sat i lessalnum sá ég að hún var að snýta sér... og tárin flóðu úr augunum á henni. Nú .. ég spurði á minni þrælgóðu dönsku "TILLYKKE MED FÖDSELSDAGEN!!!!.. eh.. hvad sker der" Hún tjáði mér það að hún hefði fengið sms frá kærastanum sínum og henni þætti svo drullupissleiðinlegt að eyða deginum í að lesa. Skildi hana vel..."ja det forstaar jeg godt.. men nu har vi kun 2 dage tilbage". Og svo reyndi ég að brosa pent... fann hvernig brosið fraus á vörum mér.. og í þessum hvísluðu orðum langaði mig að ÖSKRA!! En sleppti því. Snéri mér að mínu lesplássi bölvaði í hljóði og starði á bækurnar það sem eftir var dagsins... það er nú ekki eins og mér takist stappa mikið meiru inn í þennan haus minn sem þegar er útþjappaður af einhverju rugli sem ég veit ekki hvort er nóg til að koma mér i gegnum prófið! EINN DAGUR I DOMSDAG!

posted by xxx @ 22:47