miðvikudagur, apríl 14, 2004

Flúði heim úr Viktor Albeck til að skipuleggja mig. Skrítið hvað ég hreinlega er STOPP þegar lausu blöðin eru orðin of mörg í kringum mig. Ég er orðin hjátrúaðasta manneskja í heimi en jú þau köst tek ég alltaf fyrir próf. ...sem þýðir.. ganga í rauðum eða grænum fötum (eins og ALLIR vita er almenn þekking að rauður gefur orku og grænn er róandi). Nú svo fræddi Guðný mig um ilmolíur svo ég auðvitað rauk niður i Body Shop og keypti mér eitt stykki einbeitingarolíu. .. og keypti mér lesstatíf... maður getur ekki lesid almennilega nema að bækurnar standi almennilega... regla númer eitt tvö og þrú.. ef ekki fjögur líka. Svartir kettir.... hleyp í hina áttina ef ég er við að mæta einum.. og labba á strikum.. já eitthvað sem ég reyni að komast hjá. Helvíti erfitt samt í miðbænum í Aarhus. .. verð að hætta að rölta í bæinn. Hoppaði einmitt niður í bæ áðan og keyptir mér GRÆNA möppu og GRÆNAN yddara... erfitt ad hitta ekki á strikin sko. Slútt me di. Ég prísa mínum sæla fyrir að ég bý ekki í íbúð númer 13.. en ég átti einmitt fyrst að fá íbúð númer 213.... það hefði sko verið mjööööög vondur leikur.
.... er eitthvað fleira sem ég á að gera til að ná prófunum... eða má alls ekki gera? Tips þegin.

Ég fékk páskamat um páskana.. en Ásta töfraði fram þetta rammíslenskar læri með alle græs. Ég var svo hamingjusöm. Það þarf lítið til að gleðja litla manneskju en þetta var stóóóór gleði.

Jæja.. var það ekki skipulagning!?

posted by xxx @ 21:17