miðvikudagur, júní 16, 2004

Ég er búin að eiga svo góðan dag. Vesenast með Guðnýju í bænum .... hangandi með hinum og þessum á kaffihúsum, sötrandi kaldan fadøl. Kíkja í búðir. Hlutir sem manni fannst svo hversdagslegir áður. Nýt þess i botn.
Og þá tekur við að pakka niður.. flytja. Mér leiðist að flytja. Hef flutt 8 sinnum sl 3 ár. Nenni ekki sollis. Enda gleðst ég mikið yfir því hvað ég á lítið dót. Eingöngu það sem er allra nauðsynlegast fyrir fátækan námsmann. Eitt lítið rúm, skrifborð (ódyrasta týpan), kommóða fyrir fötin mín. Stóóórt sjónvarp. Örbylgjuofn. Meira þarf maður ekki. Nú og stórar og þykkar skruddur sem eru örugglega miklu þyngri en allt annað sem ég á. Jæja, ég keypti mér eitt stykki rauðvínsflösku og er að vona að hún stytti mér stundirnar meðan ég pakka. Þá er að bretta upp ermarnar og henda sér í dagblöðin og kassana...............

posted by xxx @ 20:31