Norsk fredagsbar
Hef nánast ekki farid á einn einasta fredagsbar tessa ønnina fyrir utan 2 tíma á langfredagsbar. Tar sem ég nádi prófinu sem ég var í um daginn ákvad ég ad tad væri kominn tími á smá come back. Fredagsbarinn var norskur. Ég hef alltaf verid hrifinn á nordmønnum. Tetta eru nefnilega alveg einstaklega sæt kvikindi. Tegar madur umgengst svona mikid af strákum vill madur litast svolítid af tví. Vissi ekki alveg hvort ég átti ad haga mér gangkynhneigt eda samkynhneigt tarna á fredagsbarnum. Svo ég brá mér í gervi beggja. Ágætlega vellukkad kvøld trátt fyrir ad ég tekkti fáa. Tad býdur upp á meira mingl. Kvøldid var líka gott fyrir egóid, án tess ad ég útskýri tad frekar. Um trjúleytid var ég treytt og arnar pirradur. Vildum fara heim. Tannig ad arnar hjóladi med mig heim á bøgglaberanum. Hann var fyllri en ég. Sem orsakadi tad ad vid hrundum tónokkrum sinnum í gøtuna. Held tad hafi verid frekar skondin sjón. Fyrir tad fyrsta er víst bannad med løgum ad hjóla fullur, nú og líka ad reida adra. Held líka ad vid høfum gleymt ad kveikja á lugtunum. Vid vorum sem sagt 3falt óløgleg í svigi á fjølførnustu gøtum midbæjarins. Dettandi á 100m fresti og bølvandi á íslensku. Ég treytt og Arnar pirradur. Arnar vildi í tad minnsta meina ad einn og einn hefdi skellt upp úr, man ekki eftir tví.
Líklega sofnud á bøgglaberanum.
Skellti mér í nautasteik til tengdó med timburmennina á øxlunum í gærkvøldi. Tad var erfid heimsókn. Ógedslega var gott ad koma heim og fá ad vera tunna kærastan. Bara fá ad vera litla tunna Gudný.
Ég er ad fara ad flytja í lok vikunnar. Mun búa á næsta stad í stutta stund en fer svo í mína eigin íbúd med mínum eigin Arnari. Rétt hjá mínum eigin háskóla. Djøfull verdur tad huggulegt. posted by xxx @ 18:30
