Ég er hérna!
Kláraði seinna prófið í gær og núna er ég búin í prófum. Vona að þetta hafi allt saman gengið og að þessum leiðinlega kafla í lífinu mínu sé lokið svo ég geti farið að takast á við eitthvað annað. Vona, vona. Já takk. Kvaddi kæróinn minn í morgun og rauk til íslands... með engin önnur plön en þau að ég væri að fara til íslands og hér er ég niðurkomin í Reykjavík. Svo verður tíminn að leiða restina í ljós. Ætli ég fari ekki norður á lau, sun eða mán.
Ég á svo langt frí að ég veit ekki hvað ég á að gera við það allt saman.Maður hefur ekki mikið að gera á Húsavík í tvær vikur svo ég býst við að vera eitthvað á flakkinu. Spakkinu. Veit bara að ég ætla að lesa ógeðslega mikið af íslenskum bókum meðan ég er fyrir norðan. Allar jólabækurnar (jájá).
En hvað er nú búið að drífa á daga Guðnýjar síðan síðast? Ekki sérlega mikið. Svaf áramótin til að mynda af mér. Veit ekki hvernig mér dettur í hug að skrifa það hérna því það er svo fáránlegt. En einmitt vegna þess að það er svo fáránlega fáránlegt þá geri ég það samt. Aðfangadag hélt ég heima hjá tengdafjölskyldunni. Það var mjööög gott kvöld. Ég fékk trilljón pakka frá þessari litlu fjölskyldu. Hélt ég ætlaði aldrei að vera búin að opna alla pakkana. Leið eins og ég væri orðin 5 ára aftur með alla þá fjörtíu pakka sem maður fékk alltaf á þeim tíma. Svo dönsuðum við í kringum jólatréð og sungum jólalög. Kannaðist nú við öll lögin og gat lalað með. Dönsku tekstarnir voru allt annað en þýddir úr íslensku svo ég þekkti þá ekki. Í lok kvöldsins langaði ömmuna (sem er þessi líka snillingur) að læra að spila póker þar sem það er einhver pókerbylgja að ganga yfir þessa dagana og Mikael spilar þetta eins og brjálaður maður. Bróðir hans spilar þetta á netinu og er alltaf að vinna einhverja péninga og svo er alltaf verið að sýna þetta í sjónvarpinu. Þannig að við spiluðum póker og ég skellti malti og appelsíni í liðið. Amman vann. Huggulegt. Góð dönsk jól. Ánægð með þau.
Annað um mína drifnu daga er ekki frásagnarvert og eiginlega einskis vert. Eyddi milljón á fríhöfninni áðan. Mér fannst ég eiga það skilið, hvernig sem einkunnirnar verða.
EN ég er með sama íslenska símanúmer og ég hef alltaf verið með. Það virkar ennþá! SVO við sjáumst :) posted by xxx @ 03:30
