miðvikudagur, maí 09, 2007

Margt smátt

Mér hefur alltaf líkað illa við að standa fyrir framan fólk og tala. Nei, aldrei líkað illa við að tala. En þegar fólksfjöldinn nær vissu marki og ég ekki sérlega náin honum sprettur svitinn fram á enninu, röddin byrjar að skjálfa og hendurnar titra. Ekki minn bolli af tei.

Þess vegna er ég alltaf með bullandi magaverk í nokkra daga áður en ég á að "framleggja" eitthvað faglegt. Þegar ég á að sýna fram á að ég viti eitthvað. Sem sagt ég er alltaf skelfingu lostin yfir því að ég viti ekki nóg í minn annars yfirleitt "velfunkerandi" haus.
Innst inni veit ég að hluti þessarar hræðslu stafar af því að ég er hrædd um að tala dönskuna vitlaust. Að fólk skilji mig ekki. Nú hef ég búið hérna í rúmlega 4 ár. Og stundum verð ég pirruð yfir því hvað íslenskan mín er orðin brengluð. Þannig að í raun og veru er ég stödd á einhverju gráu svæði milli beggja tungumálanna. Aðeins nær íslenskunni þó. Það verð ég alltaf. En í dag þegar ég var að "framleggja" "prostatakrabbameinssjúklinginn" minn fór ég að hugsa um hvernig mér myndi líða ef ég væri að gera sömu hluti á íslensku. Myndi mér líða betur með sjálfa mig? Eða yrði ég stressuð yfir sömu hlutum? Og hvað þá þegar ég þarf að spreyta mig á enskunni í framtíðinni? Ég veit það ekki. En það verður spennandi til að láta reyna á það. Einhvern tímann.

Ég elska að búa í Danmörku á vorin. Allt er orðið svo fallega grænt í kringum mig. Ég vakna kl 6 á morgnana við að sólin skín inn um gluggann (..en sofna auðvitað aftur og vakna við vekjaraklukkuna kl 7). Ótrúlega finn ég mikinn mun á mér eftir árstíðum. Allt svo miklu auðveldara á vorin. Erfiðustu hlutir verða jafnvel aðeins auðveldari á vorin.

En ég sakna Íslands. Hef saknað þess mikið undanfarið. Sakna fólksins míns. Sakna að trilla um á hvíta sæta coltinum mínum (ef hann virkar enn). Ég sakna skyrs og sundlauganna. Ég sakna fjallanna, Dettifoss og víðáttunnar. Ég sakna þess að sjá út í buskann (já þar sem öll þessi tré eru ekki fyrir). Þess vegna hlakka ég mikið til að koma heim í lok júní. Mikið,mikið :)Er með fiðrildi í maganum alla daga. En svo sakna ég líka á annan hátt. En það er víst ekkert við því að gera. Lífið er val. Og stundum þarf maður að velja söknuðinn og komast yfir hann til að koma sjálfri sér á réttan kjöl.

Og bæ ðe vei. Ég er orðin tölvunörd. Jább! Keypti mér loksins nýja fartölvu á fimmtudaginn síðasta. Gamla mín var orðin gömul kona með heilablæðingu eins Anton kallaði hana. Svo ég verslaði mér unglamb. Svo fín,svo fín! Og núna get ég allt. Já eða bráðum. Þarf aðeins að læra inn á hana fyrst. En eins og allir vita er ég ekki sérlega skörp á tölvur. En bráðum verð ég hnífskörp. Hárbeitt.

Svo eru júróvísjón og kosningar á næstunni. Ég er svo léleg. Búin að heyra íslenska júróvisjónlagið einu sinni og ég man ekki einu sinni hvernig það var. En er okkur ekki spáð sigri eins og vanalega? Danirnir eru ekki sérlega áhugasamir um júrósvísjón en ég reikna með því að skella mér fram í eldhús hérna á kollegíinu með popp og kók hvetja Eirík Hauks upphátt. Þegar ég er búin að dansa soldið flamengo með fólkinu í salsaklúbbnum mínum. Shit ætli ég geti ekki gert bæði...
En ég reikna allavega með að við komumst í aðalkeppnina(auðvitað geri ég það!) svo ég geti skellt mér í júróvísjón partý nr 2 með íslendingunum í Árósum (þar sem ég kemst ekki í júróvísjón partý nr 1). Og ef það verður ekki júróvísjónpartý er hægt að breyta því í kosningapartý. Ég veit hvaða flokkur ég vil að vinni kosningarnar. En ég veit hins vegar líka að hann vinnur ekki. Og ég komst ekki í það að kjósa. Þvílíkur bömmer. Ekki gott. Þess vegna er ég léleg.

Jiii þetta er megalangt blogg. Miklu lengra en það átti að verða. Og ég sem hafði ekkert að segja. Æjh. En núna þarf ég að fara í kickbox. Komst ekki í það í gær. Og heldur ekki mikið í sl viku. Og þá verð ég pirruð. Ég verð að halda mér góðri.

Og að lokum. Pirringskiller; La Bomba með Azur azur(Latin). Já og eitt stykki Prune og svo dansaaaaaaaa....

Já og eitt enn..... mynd af frábæra Íslandi. Á ótrúlega góðum degi. Svona ímynda ég mér að allt næsta sumar verði. En það er víst of gott til að vera satt.



P.s. ..gerir eitt stórt.

posted by xxx @ 18:01