sunnudagur, febrúar 04, 2007

If you can´t beat them, buy them!

Jæja kæru íslendingar. Hver býður sig fram í að kaupa danska landsliðið?? Er orðin yfir mig súr og pirruð yfir öllum þeim sigurglósum og glottum sem dynja yfir mig hérna í landi baunanna. Svo enn og aftur, hver býður sig fram?

Annars er ég búin að vera í Álaborg alla vikuna. Það er ágætt. Á mánudagsmorgun ráfaði ég svefndrukkin niður í háskólagarð þar sem beið rúta eftir okkur. Um 8 leytið höfnuðum við svo í Álaborg þar sem tekið var á móti okkur með morgunmat og KAFFI. Læknanemar eru mjög hrifnir af kaffi. Ég líka. Eftir fullt af kynningarfyrirlestrum, sightseeing og tilheyrandi fór yfirlæknirinn á gastromedicinsk með okkur niður í bæ að kaupa nokkra kassa af bjór og snakk. Svo var örlítið partý. Þeir vita sko alveg hvað þeir eru að gera. Hrista hópinn saman.

Ég bý sem sagt á kollegie á sjúkrahúsinu með 30 öðrum læknanemum. Eins og að vera komin í hojskole aftur. Við borðum saman öll kvöld. Skiptumst á að elda svo að á tveggja vikna fresti þarf ég að elda fyrir risastóran hóp af fólki. En öll hin kvöldin þarf ég ekki annað en að setjast við kvöldmatarborðið. Svo það eru ágætis hlutskipti. Við höfum aðgang að líkamsrækt og íþróttasal. Og fáum afslátt í sundlaugina. Eitthvað verða þeir jú að bjóða okkur fyrir að þurfa að yfirgefa okkar eigin íbúðir og búa ofan í hvort öðru í 5 mánuði. En mér finnst það bara huggulegt. F'inasta upplifun. Líklega mjög social. Jafnvel kannski of mikið af því góða.


Þar að auki er ég búin að skrá mig í salsa í "Den rytmiske aftenskole" á mánudagskvöldum og er að reyna að hafa upp á Boot Camp sem lítil fluga hvíslaði að mér að íslendingafélagið í Álaborg stæði fyrir. Væri til í að taka þátt í því.


Hérna eru nokkrar myndir síðan við fórum út að borða og fengum okkur "nokkra" bjóra á Jomfru Anne gade á eftir. Takið eftir því að yfirlæknirinn á gastromedicinsk er með okkur (sénsinn að það hefði gerst á Íslandi).













Ég eyddi helginni hérna í Árósum. Alltaf gott að koma heim í sína eigin íbúð. Við héldum íslendinga djamm fyrir læknanemana í Árósum á föstudagskvöldið sem var mjög skemmtilegt. Vottaði fyrir svolítilli þynnku á laugardeginum en samt sem áður drattaðist ég í bíó með Ástu á nýju myndina með Will Smith "The pursuit of happyness". Góð mynd.


Læt líka fylgja með myndir af íslendingadjamminu. Við hittumst á studenterhuset en þar var allt of mikill hávaði svo við fluttum okkur á Clemens -en þar brugga þeir bjórinn sjálfir. MMM...ótrúlega góður bjór. Svo lögðum við undir okkur Cafe Kindrødt og því næst Sherlock Holmes. Skemmtilegt kvöld. Takk fyri kvöldið öll sömul. Endurtaka þetta :)

Núna þarf ég hins vegar að setja upp kokkahúfuna því ég fæ tvo gamla hojskole vini í mat í kvöld. Svo þarf ég að pakka niður...aftur. Bý í ferðatöskum. En until then knúsist.








posted by xxx @ 16:27