fimmtudagur, desember 19, 2002

Í töskunni minni; lyklar, 3 bindi, gervitár, strokleður, penni (sem ég hef aldrei séð áður, úps), naglaþjöl, naglaherðir, svampar til að naglalakka táneglur (what!!!), minnisbók, peningaveski, hugmyndir að jólagjöfum frá Smáralindinni, diet coke, nokkrir minnismiðar (síðan í október!!), varasalvi made by my mother, andlitspúður, maskari, eyrnapinnar, vítamínin mín (hey, annars gleymi ég þeim, hef þá heilan dag til að muna eftir þeim!), alls konar hárskraut ( og samt er ég alltaf með slegið hár..hm!!)............................... JAHÁ, OG TASKAN MÍN ER lítil! æji fer þessi næturvakt ekki að verða búin..... klukkan er bara hálf fjögur :(

posted by xxx @ 04:25