Beinagrindur og nýbúar
Jæja! Hérna sit ég þá með þykkar bækur upp í rúmi, beinagrind á borðinu og rusl út um allt herbergi. Einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að ég sé ekki allt of mikið að meika það. Ný latínuorð hrannast upp, nýir frumuhlutar sem ég hef aldrei heyrt minnst á áður, fullt af alls konar sameindum sem ég mann ekki hvernig bindast saman síðan í framhaldsskóla (já kennslan hjá Gunna Bald og eftirförum hans síðar í MH var góð en hélst greinilega ekki í hausnum á mér lengur en fram yfir prófin). Þessu öllu er ég að reyna að púsla saman daginn út og daginn inn til að reyna að fá nett samhengi í öll þessi óteljandi líffæri, bein, vöðva og ég veit ekki hvað í líkamanum. Alltaf eitthvað nýtt að skjóta upp kollinum. Mér finnst þetta hálfskuggalegt því nú eru aðeins liðnar 3 vikur af 1 árinu. Ég krosslegg fingur og tel mér sjálfri í trú um að einhvern tímann á miðri leið í öllum þessum óskiljanlegu ferlum kvikni ljós og allt reynist þrumuskýrt og alls ekki jafnflólið og það virðist einmitt núna.
Ég gær skellti ég mér í surprise afmælispartý sem var haldið fyrir einn lækanemann hérna í Aarhus. Þar hitti ég margan manninn. Ég fór sem sagt með Guðnýju og Betu sem eru með mér hérna á 1.ári. Í partýinu voru skiptinemar í lögfræði, sálfræði, læknisfræði og svo við læknanemarnir hérna í Aarhus. Við Beta vorum einmitt að ræða það hvað við erum oft að hneykslast yfir því þegar "nýbúar" á Íslandi halda stöðugt hópinn og virðast ekki samlagast okkur "upprunalegu" islendingunum. En svo erum við að horfa á sjálfa okkur spjalla og umgangast aðra einfaldlega af því viðkomandi eru íslendingar. Kannski gróft í árina tekið ég segi það ekki. En mér finnst þetta að hluta til sambærilegt. Og ég meina, við eru í Danmörku. Þessi grey sem flýja til Íslands koma kannski frá Asíu... við þykjumst alltaf vera fordómalausasta þjóð í heimi. Gleymum að líta í eigin barm og hugsa hlutin út frá okkur sjálfum.
Jæja ætli ég haldi ekki áfram að reyna að troða latínu í hausinn á mér, þukla á beinunum mínum og sótbölvast yfir því hvað allt tekur miklu lengri tíma en maður heldur þegar maður sest niður með bækurnar til að byrja með............ og já ég veit að það er laugardagur ;) posted by xxx @ 14:59
