sunnudagur, nóvember 30, 2003

Girls night out

Ja skál fyrir því enn og aftur! Það var opið í búðum til kl 12 á föstudagskvöldið svo við kíktum í búðir eftir að við vorum búin að snurfusa okkur hægri vinstri. Svo lá leiðin niður á social club. Ég dansaði mig upp að öxlum og steingleymdi að ég er nýorðin single. Svona ekta girls night out. Ein helltist að vísu úr lestinni þegar líða tók á kvöldið þar sem hún vildi vera lengur á svæðinu en við hinar enduðum kvöldið á Burger King með tilheyrandi magapínu og látum. Burger King sukkar. ... ég hef aldrei verið jafupptekin við að dansa.. hafði ekki tíma til að tala við neinn né kynnst einum einasta af þessum íslendingum sem voru á svæðinu... það fattaði ég ekki fyrr en á leiðinni heim.

posted by xxx @ 22:17