Lögbrjótur í Danmörku
Hvað rugl var nú þetta! Var að labba í strætó eftir að hafa massað þessar síður í Viktor Albeck. Ákvað að málið væri að fá sér kvöldgöngu fyrir svefninn svo ég labbaði fram hjá fyrstu stoppistöðinni til að húkka strætóinn á þeirri næstu. Gott mál! Ég rölti í hægðum mínum (...uh... hægðum... segir maður það?) yfir fyrstu gatnamótin á rauði ljósi eins og heiðvirtum íslendingi sæmir (að sjálfsögðu... kl 22 á þriðjudagskvöldi þegar ekki einn einasti bíll(eða svo gott svo sem) er sjáanlegur. .. og fæ þessu hrikalegu blikkandi ljós á mig!!! .. "Du kunne godt se at lyset er rødt, ikke?". Jo... det kunne jeg.. "Du ved jo godt at man går ikke over gaden når lyset er rødt".. jo ..det ved jed .. eh, det er rigtig .. " ellers bliver kørt over dig".. uh, ja .. det er jo det... det ved jeg...
HAHAHAHA! ... ég þorði ekki að fara yfir á rauði á næstu ljósum. Ég er lögbrjótur í Danmörku! posted by xxx @ 22:33
