jájájá bloggframistaðan er ekki alveg að gera sig þessa dagana. Andinn hefur tekið sér lengra frí en hann er vanur. Held að ég sé farin að hanga of mikið með Lenu og skólabókunum til þess að hann nenni að hanga með mér. Kannski einhver afbrýðisemi í kallinum. Minna má nú samt vera. Kannski hefur honum brugðið þegar Lena henti í mig kóki og skipaði mér að drekka það því hún var búin að taka eftir því að ég hefði drukkið of lítið yfir daginn... .. kannski finnst honum að lærusamband okkar Lenu sé einfaldlega að ganga út í öfgar þar sem hún er farin að mæta með nesti í skólann handa mér........ kannski líkar honum ekki við órökuðu lappirnar mínar.. kannski líkar honum ekki hvað ég er farin að horfa mikið á fólk í kringum mig og dæma alla eftir hugsanlegum heilasköðum.... honum finnst líklega leiðinlegt hvað ég djamma lítið.. já eða ekkert... hm...(sko ég mæti samt alltaf á svæðið-bara edrú!)... kannski finnst honum ég bara leiðinleg. En skítt með það. Hann getur átt sig í bili. Veit að við komum til með að hanga meira saman í sumar. posted by xxx @ 20:08
Queen of Denmark
....sögur úr danaveldi
Previous Posts
- Jæja vinir mínir nú er geðveikin byrjuð. 2.semeste...
- Hún á ammli í dag... hún á ammli í dag... hún á am...
- og by the way..tetta er tærasta snillid ->ruslpost...
- Í dag uppgötvaði ég jólakortin mín sem ég hafði ek...
- Gleðileg jóla og farsælt komandi ár. Knús, kossar ...
- Ég skellti mér í heimsókn til Katrine í dag. Stelp...
- ... þetta er svo satt! uppskrift að jólum!!!! "2 ...
- ..for helvede man! Ég ætlaði að vera svo dugleg að...
- Ég fór í klippingu og plokkun í dag! Það er ekki h...
- Fakta Eitt Ég er komin í jólafrí Fakta Tvö Ég kem ...
Gestabók/Gæstebog
Nokkrar staðreyndir
Myndir/Billeder
Á götum Árósa
Aðrir bloggarar
Litlu krílin
Nauðsynleg lesning
Skólatengt
Andlegt
fimmtudagur, febrúar 26, 2004
