miðvikudagur, júní 23, 2004

Þá er ég loksins komin til Íslands og verð komin norður kl 18 í dag. Furðulegt hvað tíminn líður hratt. Eftir prófin tók ég mig á á öðrum sviðum í lífi mínu og djammaði eins og hægt var miðað við aðstæður og fyrri störf. Ég er hænuhaus. Ég skellti mér í lestina til kastrup beint af djamminu eftir að hafa sett alla Aarhus á annan endann og eignast leigubílstjóra sem besta vin. Held svei mér þá að ég hafi gleymt gönguskónum mínum í lestinni og mig vantar hitt og þetta því ég skildi drasl heima hjá Guðnýju ...og man ekkert hvaða drasl það er. Vona samt að ég hafi gleymt því hjá henni í stað þess að hafa gleymt því í leigubílnum, lestinni eða flugvélinni. Ég sofnaði í lestinni en vaknaði í köben rétt til að drösla draslinu mínu (eða því sem ég náði að taka með)með mér. Fékk voða sæt (nah.. kannski voru sumir pirraðir) bros þegar ég leit í kringum mig. Öll útslefuð. Hafði víst talað heilan helling upp úr svefni... og ég var í svefnvagni. Ekki vinsæl. Pöh... já ég er ekki góð í að drífa mig af djamminu beint í lestina klukkan 7 á sunnudagsmorgni og þar að auki allt of sein, ég er heldur ekki góð í að sofa hljóðlega í svefnvagni á leið til Kastrup. Maður getur ekki verið góður í öllu. Ég get það allavega ekki. d En fokk it, ég náði prófunum og þá má ég allt. Tileinka restinni af þessum mánuði mér og öllu því sem ég má ;)
Guðný takk fyrir gistinguna og við heyrumst fljótlega... spjalla við þig um íbúðarmál.

En þá er það hún Sunna mín sem er komin með blogg. Linkur á hana hérna til hliðar. Jæja flugið bíður eftir mér.... dröslast af stað-ekki og sein í þetta skiptið.

posted by xxx @ 17:35