...bakverkur
Fimmtudagurinn var kúl. Kom fúl og leiðinleg úr klinik en Dilja esskan bjargaði deginum með því að bjóða mér í mat og íslenskt Idol. Eftir alla þessa hygge hygge endaði ég á social club með Katrine og Miu. Þurfti ekki meira en eitt sms til. Arnar ruddist svo inn í tilveruna mína í gær. Við byrjuðum á því að fara í jysk (rúmfatalagerinn) og fengum kaupæði þar. Við fórum sem sagt þaðan út með tvo fulla ruslaboka sem innihéldu sængur, kodda, rúmföt og svefnpoka. Þarna keypti ég mína fyrstu gestasæng. Hún heitir Arnar. Stolt yfir þeim kaupum. Eftir að Arnar hafði eldað og við borðað hentumst við út á banegården til að ná sjöunni því ferðinni var heitið á Børglum kollegiet til Möggu og Evu. Okkur tókst ekki betur til en svo að við hoppuðum inn í sexuna og rúntuðum um í Risskov. Fórum með henni út á endastöð og til baka aftur. Stálum glösum í seven eleven og blöndudum okkur mojita í strætóskýlinu meðan við gerðum aðra tilraun til að ná sjöunni. Sem tókst ;) Áttum gott kvöld með Möggu og Evu. Hrundum í gólfið á social club... (er ekki að fatta afhverju ég enda alltaf þar, þetta er eiginlega stærri útgáfa og solon) og hér sit ég með bakverki og tilheyrandi. Læknahittingur í kvöld... höres. posted by xxx @ 13:27
