miðvikudagur, maí 24, 2006

Tour des chambres

Setti inn myndir í nótt. En í gærdag var nefnilega hjólatúr hjá ofursociale bekknum mínum. Þetta er árlegur viðburður þar sem við hjólum á milli íbúða nokkurra útvalda úr bekknum, höfum það huggulegt í um það bil klukkutíma á hverjum stað, drekkum þá drykki sem gestgjafinn hefur upp á að bjóða og förum ef til vill i einhverja leiki. Þetta fjölfarna partý okkar tekur yfirleitt allan daginn og síðasti staðurinn er svo heima hjá mér. Í gær stoppuðum við á 6 stöðum.

Byrjuðum heima hjá Jes. Þemað hjá honum var Ibiza og pubcrawl. Get svarið það að ég var farin að finna á mér eftir alla þá drykki sem hann hellti í okkur og ég varð dauðslifandi fegin þegar ég slapp út úr þeirri íbúð.

Því næst hjóluðum við heim til Birgitte en þar var drukkið úr skíðastígvélum og töluð þýska. Ég er búin að gleyma ALLRI þýsku.


Hjá Lenu var grillað og garðfest. Skáluðum í Tuborg.

Eftirréttur hjá Mary og irish coffee. Hérna spilaði Kjetil nokkur tónverk á píanó. Það eru ekki til sá hlutur eða hljóðfæri sem þessu maður getur ekki spilað á.

Heima hja Christina var hyggeþema og kaffe beilís.


Slúttuðum heima hjá mér en hjá mér var þemað "Peace, Love and Understanding" með tilheyrandi hippatónlist, vatnspípu og kertum í tonnatali. Drógum upp gítarinn og sungum.

posted by xxx @ 01:37