Lööööng helgi
Kom heim til Árósa í kvöld og er í fríi fram á mánudag. Það er svooo gott. Fríið fer samt í að vinna að verkefninu mínu. Já og kíkja á nokkrar vinkonur ýmist í kvöldmat eða morgunmat.
Ég fylgdist hvorki með kosningunum né Eurovision. Eyddi laugardeginum í Hadsten Højskole með gamla hópnum mínum þar. Æðislegt að hitta þetta fólk aftur. Eins og ég upplifði margt með þeim þetta hálfa ár sem ég eyddi með þeim. Gamlir góðir tímar. Ég ég sem var að hugsa um að mæta ekki neitt.. hugsunin um að við værum öll vaxin frá hvort öðru fékk mig til að halda að ég hefði ekkert þangað að sækja. En jú!! Átti frábæran dag. Og núna get ég líka talað dönsku en það gat ég voðalega takmarkað á sínum tíma.
Læt eina mynd fylgja með. Hún er tekin kl 3 aðfararnótt þriðjudags. Ekki spyrja mig afhverju í ans****** ég var vakandi þá. Myndin er tekin í eldhúsinu á kollegíinu í Álaborg. Þar sitjum við nokkrir læknanemar og í nördaskap erum við að æfa okkur að leggja venflon (setja upp nálar). Þarna er ég sem sagt með nál sem Trine kom fyrir á greinilega mjög góðan hátt. Hafði steingleymt þessu... þangað til ég skoðaði my
