föstudagur, desember 20, 2002

"Vatnsberi - Hugsuður sem vill frelsi, yfirsýn og framfarir

Vatnsberinn er sjálfstæður og "óáþreifanlegur", maður hugmynda og sérstöðu. Hann er oft félagslyndur, en vill samt vera óháður og fara eigin leiðir (félagslyndur einfari). Hann laðast að því sem er öðruvísi og oft er sagt að hann sé á undan samtíð sinni. Í framkomu er hann að öllu jöfnu yfirvegaður, kurteis og þægilegur. Hann er stoltur og lítið fyrir að bera persónuleg mál sín á torg fyrir aðra. Vatnsberinn leggur áherslu á að skynsemi stjórni gerðum sínum og vill halda umhverfinu í ákveðinni fjarlægð, m.a. til að hafa yfirsýn og til að halda í frelsi sitt. Hann þolir ekki afskiptasemi og á sjálfur til að vera hlutlaus, ópersónulegur og afskiptalaus. Hann hefur oft sérstakar skoðanir á lífinu og tilverunni og er fastur fyrir og fastheldinn í viðhorfum. Hann á því til að vera sérvitur. Vatnsberinn er oft fróðleiksfús, hefur áhuga á þekkingu og vill framfarir og úrbætur. Hann hefur sterka réttlætiskennd."


-já er þetta ég?? Gæti verið... og þó, kannski ekki!

Ég fór í bláa lónið í dag sem var svona líka stuð. Myrkur-hef aldrei farið í bláa lónið í myrkri áður. Og viti menn, þegar ég fór upp úr og þurrkaði mér henti ég sundbolnum mínum. = hann er dáinn, blessuð veri minning hans! Svo fór ég út að borða á jing jing eitthvað í Keflavík... í matnum hans Krissa var vír úr vírbursta...hm.. fengum að velja okkur rétti af matseðlinum í boði hússins í skaðabætur. Maturinn var æði... það er ekki það einn besti kínverski matur sem ég hef smakkað en ég efast um að vírinn hafi bragðast vel. Þegar við Krissi förum út að borða erum við alltaf heppin - undantekningalaust.

Pizzastaður í Chicago; gleymdist að elda handa okkur pizzuna, ok en fengum 50% afslátt
Kínverskur staður í China town í Chicago (já alls staðar eru þessi blessuðu kínahverfi); maturinn vægast sagt ógeðslegur ... verst að ég man ekki nafnið á staðnum!
Nú nú og þessi jing jing... en maturinn var samt ógeðslega góður...
Indverski/pakistanski (or whateverr) staðurinn Shalimar.. góður matur en svo sterkur að Krissi þurfti að drekka 4 litra af vatni með (...og nei ég er ekki að djóka) og panta brauð til að deyfa bragðið. Ég var hins vegar í góðum gír ;)
...ég man ekki eftir fleirum

og jólakortin verða bara sms í ár... eða svo gott sem :)

posted by xxx @ 04:34