mánudagur, október 06, 2003

Haust

Í morgun þegar ég hoppaði út úr íbúðinni minni hérna í Tilst tók nístandi kuldi á móti mér. Ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að bregðast við þessum móttökum en bjóst við því að þær yrðu nú blíðari þegar líða tæki á daginn. Svo ég ákvað að velta mér ekki frekar upp úr því og skokkaði glöð í bragði að strætóinum mínum og mætti í skólann. Svo rottaðist ég allan daginn við að læra um vöðva og golgiapparöt og leit fyrst að ráði upp úr bókunum klukkan 17 en þá ákvað ég að leggja heim á leið. Ennþá var kalt. Haustið er komið, engin spurning með það.

Eg fæ haustfrí núna á föstudaginn, fram á miðvikudaginn efitir það. Ég tel niður dagana.. og nei málið er ekki það að ég ætli að djamma feitt eða slappa virkilega af... jú að einhverju leyti slappa ég betur af en á venjulegum skóladegi en samt sem áður; ég bíð efitir því að geta komið skipulagi á það sem ég er búin að vera að gera hingað til. Ég veit ekki hvað er að mér ... svona er hugsunarhátturinn minn í dag. Mér finnst efnið hrannast upp og ég er engan veginn að geta tekið við því öllu.

Sl helgi hittumst við þrjú sem erum hérna á fyrsta ári í læknisfræðinni og það var svona líka huggulegt kvöld með pizzu sem ég át yfir mig af og svo fékk ég súkkulaðikökku. Þeir sem þekkja mig EITTHVAÐ vita hvað ég elska súkkulaði og súkkulaðikökur .. svo þetta var draumkvöld. Kannski ég baki súkkulaðiköku í haustfríinu, en ju Krissi kemur í heimsókn .. svo já það er líka ein af ástæðunum fyrir því að ég hlakka til hausfrísins.

posted by xxx @ 19:06