þriðjudagur, nóvember 04, 2003

Hulda.. þú átt ekki að skrifa á bloggið mitt!! Notaðu gestabókina eins og aðrir! Mig langar aðeins að minnast á molbúaháttin minn hérna í dk. Ég er nýkomin heim frá því að kaupa strætókort og versla jógúrt og kornfleks inn í matinn. Þegar ég kom heim áttaði ég mig á því að ég hef ekki þvegið þvott í 2 vikur sem þýðir einfaldlega það að ég er að verða búin að notta allt úr fataskápnum mínum.. allavega það sem er íveruhæft. Ég skundaði í þvottahúsið til að skella í þvottavél en haldiði ekki að það sé allt upppantað fram á fimmtudag. Ójújú. Ég verð því að sætta mig við það að vera í einhverju ekki mjög fallegu næstu 2 daga. En ég pantaði líka 3 þvottavélar á fimmtudagskvöldið........... óhuggulegt hvað ég er utan við mig.

posted by xxx @ 18:09