STAPP STAPP
Ég veit ekki hvað er málið en í dag er ég pirraðasta manneskja í heimi. Ég er svo pirruð að ég gæti barið einhvern.... (ég veit ekki hvern). Ég er svo pirruð að ég ákvað að fara í verkfall á allt það sem viðkemur bókum og skóla. Við fórum út í sjoppu og leigðum 2 DVD.... samt veit ég að ég á eftir að fá dúndrandi samviskubit. En ég meina kommon. Ég hef ekki tekið mér EINN skitinn dag í frí frá lestri síðan skólinn byrjaði. Og í dag ætla ég þess vegna að vera pirruð og ... vera pirruð, vera skítsama um allt. Hugsa samt að ég verði að fara að kíkja á líkamsræktarkort í vikunni. Held að ég verði að ná mér í útrás á annan máta en með því að svala löngunn minni í að berja fólk ............... posted by xxx @ 17:49
