Hér er sko orðið kaldara en hjá Húsavíkur-Jóni.... ég þarf ekki orðið að hafa fyrir því að labbi í skólann, hm eða sem sagt strætó. Ég skelf þangað. Mér líst ekkert á áframhaldið. Nú vegna kuldans skellti ég á mig hvítu húfunni minni sem sum ykkar þekkja ;) Hönnun okkar mömmu-besta húfa í heimi og þar að auki hlý. Kuldinn festist í mér í morgun. Ég veit ekki afhverju. En mér hélt áfram að vera kalt eftir að ég var komin í skólann svo ég ákvað að vera með húfuna. Ekkert að því finnst mér. Fyrir vikið fékk ég að heyra að ég væri "lige som en julenisse".. lítil jólastelpa!! æjh mér fannst það kúl svo hérna sit ég með húfuna. Búin að fá nóg í dag... og ætla að fara að sofa.
Ég sá að Diljá er að spyrja á heimasíðunni sinn hvað það sé sem íslendingar í útlöndum sakni mest. Ég veit ekki með aðra, en þar sem ég er hérna í Danmörku sakna ég landslagsins heima.. ég sakna fjallanna alveg ótrúlega mikið. Sé Tungufjallið alltaf fyrir mér (..sveeeeeeiiitin mín). Þar að auki sakna ég fjölskyldunnar, en ég ætti nú svo sem að vera orðin vön því að vera alltaf langt frá öllum ;) Kemst upp í vana. Maður er bara þeim mun ánægðari með þann tíma sem maður fær með þeim sem maður hittir sjaldan. ... en svo ég nefni nokkra hluti sem ég sakna frá íslandi fyrir utan vini og ættingja:
1).. fjallanna... FYRST OF FREMMST
2) það að fara á djammið og þekkja annan hvern mann ( þó það sé stundum þreytandi)
3) Mjása (það er jú bíllinn minn sem er í geymslu hjá ömmu og afa þessa dagana)
4) hvað það er "stutt" í allt (Reykjavík er ..svo lítil og hvað þá Húsavík)
5) súpu í brauði á Svarta Kaffi
6) Laugardalslaugarinnar... "Laugardagslaugin" eins og hún hét hjá mér í gamla daga....
... kemur mér á óvart hvað mér dettur fátt í hug-þarf að leggja höfuð í bleyti ;) posted by xxx @ 21:38
