sunnudagur, október 19, 2003

Í gærkvöldi skellti ég mér út að borða og á kaffhúsarölt med Guðnýju og Betu ásamt Völu vinkonu Guðnýjar og vini þeirra sem er í arkitektúr hérna í Aarhus. Verst að ég man hvorki hvað veitingahúsið hét né kaffihúsin eins og mér leist vel á þessa staði. Svona er það að vera með gullfiskaminni. Og hvað á ég að segja um afrek dagsins... þið vitið jú að þar sem ég á mér nánast ekkert líf þessa dagana hef ég frá takmörkuðu að sega, því miður. Ég er að hugsa um að skella mér út í göngutúr áður en ég fer í sturtu og ...líklega upp í rúm með bækurnar.

posted by xxx @ 17:42