laugardagur, febrúar 28, 2004

Mín mætt á læknabókasafnið kl 8 á laugardagsmorgni. Samt ekkert ein í húsinu sko... greinilega einhverjir á næturvakt í lestri. Úha.. það er ekki mín sterkasta hlið.. legg ekki út í svoleiðist vitleysu. Ég er símasambandslaus í dag... gleymdi að borga símareikninginn minn hja Telmore svo ég fékk nokkrar hótanir emailleiðis... hef nottla ekki kíkt á emailið mitt í háa herrans tíð og svo kabúm!! Þar sem ég sat í mestu makindum yfir hliðarveggjum nefholsins fékk ég sms....og búið að loka fyrir allar úthringingar og smssendingar... og svo eru þeir víst að fara að loka fyrir innhringingar líka. Noh.. svo ég skellti mér í málin áðan og borgaði heila klabbið... verð komin í sambandi í kvöld eða í fyrrmálið. Tekur smá tíma. ... og fest í kvöld.. læknanemafest!!
...ein ég sit og sauma inn í litlu húsi enginn kemur að sjá mig nema litla músin... hoppaðu upp og lokaðu augunum bentu í vestur bentu í austur bentu á þann sem að þér þykir bestur (hvað varstu að gera Heiðdís.. síðan ég las bloggið þitt hringlar þetta í hausnum á mér daginn út og daginn inn). ... jæja smá lestur og svo fest er það ekki??

posted by xxx @ 19:39