Var að koma heim úr matarklúbbinum mínum og þetta er eitt besta kvöld sem ég hef átt lengi. Við erum 6 stelpur úr bekknum sem hittumst annað slagið og gerum mat saman...og gerum eitthvað sniðugt í leiðinni. Í kvöld var mexikóskt þema...matur tónlist og stemming. Frábært kvöld. Fyndinn hópur líka því að við tölum ekkert svo mikið saman dags daglega erum jú allar saman með okkur usocial bækur einhvers staðar út í horni.. eins og það er í þessari læknisfræði. Ég og Lena eyðum mjög miklum tíma saman en hinar 4 eru ekki einhverjar sem ég eyði geigvænlegum tíma með fyrir utan skólann. Skemmtileg blanda.. ég íslendingurinn, 2 sænskar, 2 danskar og ein bandarísk sem er flutt hingað til Danmerkur til kærastans síns til að vera. ....... ákváðum að lyfta okkur aðeins upp áður en geðveiki próflesturinn gengi í garð... en það er að gerast hvað úr hverju... ásamt kvefi, hósta og öllu tilheyrandi. Efast að ég komist lifandi út úr þessu öllu saman. Ákváðum að eftir prófin..18.júni förum við í nudd saman.... á ströndina á eftir yfir daginn og ...DJAMM eftir það. Og þá er bara að leggjast í dvala og kreysta úr sér síðustu kraftana fram í maí. ... ... ... 2 og hálfur mánuður eru ekki neitt... lítið brot í hafsjó lífsins... for fanden hvað lífið verður fullkomið.. (jah.. eða eins fullkomið og það getur orðið) ef ég næ þessu... posted by xxx @ 23:33
Queen of Denmark
....sögur úr danaveldi
Previous Posts
- Neihei ég fór sko ekki í partý á laugardaginn... é...
- Mín mætt á læknabókasafnið kl 8 á laugardagsmorgni...
- jájájá bloggframistaðan er ekki alveg að gera sig ...
- Jæja vinir mínir nú er geðveikin byrjuð. 2.semeste...
- Hún á ammli í dag... hún á ammli í dag... hún á am...
- og by the way..tetta er tærasta snillid ->ruslpost...
- Í dag uppgötvaði ég jólakortin mín sem ég hafði ek...
- Gleðileg jóla og farsælt komandi ár. Knús, kossar ...
- Ég skellti mér í heimsókn til Katrine í dag. Stelp...
- ... þetta er svo satt! uppskrift að jólum!!!! "2 ...
Gestabók/Gæstebog
Nokkrar staðreyndir
Myndir/Billeder
Á götum Árósa
Aðrir bloggarar
Litlu krílin
Nauðsynleg lesning
Skólatengt
Andlegt
fimmtudagur, mars 04, 2004
