ójájá...þá er ég komin til byggða og komin í samband við umheiminn aftur. Farin að hlusta á fréttirnar og svona. Stakk mig mjög þegar ég heyrði að elsku forsætisráðherrann okkar væri kominn á skjúkrahús með æxli í nýra og alles.. enn frekar þegar sagt var frá því að atkins kúrinn hefði farið svona hrikalega illa í manninn. Og fjölmiðlafrumvarpið. Ég ætla ekki að fara út í þá sálma. Ég var í helgarfríi og eyddi því hérna í sveitinni. Fór í partý á Kópaskeri. Þar gætti margra grasa og býst við að hver einasti haus úr sveitinni og á Kópaskeri á aldrinum 16 (já og eitthvað niður úr) og uppúr í partýhæfu standi hafi verið þar á svæðinu. Ég bæti nýjum link hérna til hliðar "Bláa síðan" þar sem slúðrið úr sveitinni fær að njóta sín.
Daaa... da...
posted by xxx @ 17:49
