mánudagur, júlí 05, 2004

Sveitalíf

Þá er fyrsta helgarfríinu mínu lokið. Þau verða nú ekki mörg í sumar (snökt,snökt) og þess vegna vel nýtt. Finnst ég hafa staðið mig mjög vel þessa helgina.
Föstudagur: Dró Krissa með mér á fótboltaleik með Snerti hér úr sveitinni og Boltafélaginu frá Húsavík . Mætti sem húsvíkingur á svæðið en brekkan var fljót að snúa mér. Áður en ég vissi af var ég farin að hvetja Snört eins og brjálæðingur. Veit ekki alveg hvort ég var að svíkja lit eða ekki. .. æji fannst það samt ekki því bróðir minn var ekki að spila með Boltafélaginu þennan leik. Nú svo skellti ég mér á ekta sveitaball á Kópaskeri með Lindu. Þar vantaði alla stemmingu… held að íþróttasalurinn hafi verið of stór. Alltaf mest stemming þegar þröngt er um manninn. Vaknaði snemma daginn eftir og renndi inn á Akureyri með Krissa. Fínasta ferð. Þræddum allar búðirnar. Var reyndar búin að reikna með 4 tímum í búðarráp. Hafði greinilega gleymt hvað búðirnar eru fáar…hm.. veit að 1 ½ tími er nógur næst. Greinilega eitthvað farið að slá út fyrir minni. Droppaði rétt aðeins á Hölluna mina og Jónathaninn hennar. Fórum út að borða á Bautanum og svo í bíó á Godsend. Hún var fín. Í anda “the sixth sense” og … já svona kannski soldið siðfræðileg (með góðum vilja og miklum heilabrotum). Hún fær alveg þrjár hjá mér. Þrusaði í sveitina um kvöldið og skellti mér í heimsókn í flottasta sumarbústaðinn hérna í sveitinni. Átti í raun að vera njósnaleiðangur þar sem ég ætlaði að sýna pabba þetta “ævintýraland” sem ég hafði fundið þegar ég var að bera dagskrá þjóðgarðarins út um allar trissur en við vorum gripin glóðvolg… svona gerist þetta. Vistin var samt ekki slæm og við fengum kaffi og meðví! Réðumst á geitungabú fyrir konuna og drævuðum svo heim um eittleytið. Á sunnudaginn var ég rifin upp fyrir allar aldir til að mæta í skírnarmessu hjá presthjónunum á Skinnastað. Og veisla á eftir. Margréttuð og ég valt út um dyrnar á Lundi (nú “veitingastaðurinn hérna í sveitinni”) um 15 leytið. Mér fannst ekki hægt annað en að enda helgina með trompi og eftir miklar vangaveltur ákvað ég að skella mér í þessi nýju náttúruböð í Mývatnssveitinni. Og það gerði ég og dró Krissa og pabba með. Við máttum ekki missa af EM, Grikkland, Portúgal og fengum okkur því hammara í Selinu í Mývatnssveitinni eftir baðið. Skilaði Krissa af mér á flugvöllinn á Akureyri og dottaði aðeins á Húsavík. Nú er ég mætt í vinnuna aftur og verð hér næstu 8 dagana á 10-23 vöktum. Þangað til næst … daa, daaa….

posted by xxx @ 19:13