Samviskusama ég
Ég er að reyna að grafa upp "samviskusömu mig" þessa dagana. Skólinn byrjaði af fullum krafti síðast liðinn mánudag með allri sinni eðlis-og efnafræðidýrð. Er samt enn að spóla í bókunum. Öll stærð-, efna- og eðlisfræði síðan úr menntó er svoooo gleymd. Hnuss! Bölva þess vegna meira þessa dagana en að fletta blaðsíðum. Þetta kemur allt saman að lokum, þarf greinilega að hafa mikið fyrir því. Og er hreinlega ekki alveg komin í gang ennþá eftir djamm síðustu annar. En það kemur, ójájá. Annars tók hún "samviskusama ég" sig til og var edrú meiri hluta þessarar helgar. Já meiri hlutann. Nema á föstudaginn þar sem ég mætti á fredagsbar í öllu mínu veldi og í afmælispartý þar á eftir. Ekki slæmt. Og þar sem ég var búin að ákveða að fara ekkert í bæinn (vegna einstaklega mikillar samviskusemi) sat ég í þessu blessaða partýi til kl 5 um morguninn í staðinn (haha) en þá rölti ég heim. Þynnka á laugardegi. En þá um kvöldið var haldið partý hérna á Dalgas avenue sem ég sjálf mætti í á miðnætti(nokkuð fyndið að mæta seint í eigið partý heima hjá sjálfri sér haa...). Svo nei ég er ekki dauð.... bara byrjuð að lesa aftur. Dejligt, hva? posted by xxx @ 22:27
