föstudagur, júní 09, 2006

Long time, no blog!

Próflestur þessa dagana. Ætla mér að ná þessu prófi og fara svo í langþráð sumarfrí. Bara tvær vikur eftir. Hversdagsleikinn (hah!) er sem sagt fylltur upp af bókum. Bækur um alls konar bakteríur og vírusa, einstaka orma og blóðsugur. Allt mjög spennandi. Hulunni svipt af alls konar sjúkdómum. Loksins veit ég afhverju!! "Afhverju" er nefnilega orð sem bergmálar ótt og títt í hausnum á mér. Ég var einstaklega óþolandi barn ;)

En já Berglind!! Til hamingju með afmælið í dag. Orðin 24 ára. Ég mæti hress og kát í brúðkaupið þitt 12.ágúst. Jafnvel þó að þú hræðir mig aðeins. Fyrsta barnaskólavinkona mín sem giftir sig!

Til hamingju með afmælid á morgun Heiða!

Og Mira!Hlakka til að fara á ströndina með þér þegar ég er búin í prófi. Búin að panta 27 stiga hita þá daga sem ég verð hérna áður en ég fer til Íslands.

Jóna og Þórdís..já og Berglind, þú spurðir víst líka! Ég lendi á Íslandi þann 27.júní. Flýg frá Kastrup til Akureyrar. Beint á norðurland. Er meira að segja farin að hlakka svolítið til. Á síðasta ári var ég í allt 10 daga á Íslandi. Og jú kíkti nú aðeins við í janúar á þessu ári. Ég hef ekki verið að ráði á Íslandi í 2 ár. Verð í rúma 2 mánuði. Á samt eftir að sakna margs héðan. 2 mánuðir er langur tími þegar maður skilur eftir uppáhaldsknúsið sitt.

Jæja. Spáð 27 stiga hita um helgina. Sem þýðir að ég get notið góða veðursins í hádegispásunni, kaffipásunni og í kvöldmatnum. Og ef mér skilst rétt þá ætlum við að halda íspásu á morgun. Hlutir sem gera hversdagsgrámann aaaaðeins litríkari á þessum síðustu og verstu tímum, rétt fyrir sumarfrí.

posted by xxx @ 21:54