..að drepa tímann
Málum er háttað á þann veg að alla mánudagsmorgna tek ég rútu frá Árósum til Álaborgar kl hálf 7. Það þýðir að ég þarf að vakna kl 5. Af einhverjum ástæðum gengur mér illa að sofna þau kvöld sem ég veit að ég þarf svo snemma á fætur. Ástæðuna veit ég ekki. En vegna pirrings yfir svefnleysi síðastliðnu mánudaga ákvað ég að fara ekkert að sofa í kvöld. Sá ekki tilganginn í því að sofa í fjóra tíma og vakna grútmygluð og þreytt til að þreyfa mig áfram í rútuna.
Engin lógík? Neh. Víst ekki. Svo ég sat í háskólanum til kl 21 í kvöld. Kom heim og eldaði mér kvöldmat og spjallaði svolítið við Arnar. Svo tók ég upp greinarnar sem ég er að lesa fyrir verkefnið mitt og pældi svolítið í þeim. Fór í sturtu... tók nokkrar fegrunarmeðferðir. Las cosmopolitan. Surfaði aðeins á netinu. Las nokkrar greinar yfir. Pakkaði niður. Og núna veit ég ekkert hvað ég á að gera. Klukkan er að verða 6. Sem þýðir að eftir tuttugu mínútur þarf ég að rölta af stað í rútuna þar sem ég ætla mér að lesa aðeins á leiðinni til Álaborgar.Ég er ekki þreytt. Var búin að gleyma hversu assgoti huggulegt það er að vera vakandi á nóttunni. Hins vegar geri ég fastlega ráð fyrir að þetta dragi dilk á eftir sér þegar líða tekur á daginn. Sem er ekki gott því ég er í kennslu til kl 19 í kvöld. Hm. Whatevverr. Sofna þá og verð stálhress á þriðjudaginn. Samt soldið skrítið. Því það er ekkert í gær.. því í dag rann saman við gærdaginn. Uhh.
Jæja best að skrifa nokkur praktísk email áður en ég rölti af stað. Djöfull nær maður miklu þegar maður sefur ekki. posted by xxx @ 05:39
