föstudagur, desember 20, 2002

Þá er ég komin á víkina! Allt dimmt og drungalegt, skrítið vegna þess að mér sýnist að allir hafi verið duglegir við að hengja jólaseríur upp í alla króka og kima. Allt uppljómað-samt er myrkur. Þetta er eðlisfræði sem ég skil ekki. Nú svo ætla ég að biðja Gumma bróður minn að kenna mér betur á þetta drasl hérna sem ég nota til að hripa niður pælingarnar mínar. Mér sýnist allir vera með rokna gestabækur, commentadót, ... tengingar við aðrar heimasíður og ég veit ekki hvað og hvað. Hvernig í ********* gerir maður þetta allt. Þegar ég var að þroskast í maganum á mömmu voru tölvur ekki til (já eða svo gott sem) engin gen hafa gefið sér tíma til að þróa með sér þennan háþróaða hæfileika. Það er ekki snefill af visku í mínu litla heilabúi um tölvur!! Það er föstudagur.. mér líður hins vegar ekki föstudagur. Ég svaf bara 4 tíma í dag, held að ég fari snemma að sofa í kvöld. Kíki kannski á imbann ef ég nenni. ..ekkert betra að gera!

posted by xxx @ 22:32