miðvikudagur, janúar 01, 2003

...þynnka dauðans! Ég var að vinna í gærkvöldi, missti af áramótaskaupinu. Það finnst mér skítt því ég hef heyrt að það hafi bara verið nokkuð gott. Endaði svo í partýi hjá Sigurveigu. Það var mjög gaman þar.... held að þynnkan orsakist af því. Litli líkaminn minn hefur ekki innbyrt áfengi svo lengi að hann þolir ekki svona sull. Maður er orðinn svo ónýtur. Mig langar heim, undir sæng. Krissi dró mig heim kl 5, já pælið í því KL 5!! Ég ætlaði að djamma til 8 eða 9. Það var ekki tauti við manninn komið. Og áramótaheitið, hm, það fór eitthvað forgörðum í gær. Helda að það verði eins og vanalega. Læra eins og ég get.. og kannski léttast um nokkur kíló. Það er mjög venjulegt að skemmtilegt áramótaheit. Ó guð.. hvað ég er þunn!

posted by xxx @ 20:04