föstudagur, október 10, 2003

Svona getur maður komið sjálfum sér á óvart

Núna er ég komin í haustfrí. Það er ekkert til að grenja yfir, það get ég nú sagt. Ég byrjaði fríið á því að fara niður í præparatsal með danska læsemakkanum mínum sem heitir Lena og við æfðum okkur á vöðvunum. Skólinn hefur nefnilega þá frábæru kosti að við getum æft okkur a vöðvum og beinum.. líffærum og det hele á alvöru líkömum. Ég hefði aldrei nokkurn tímann trúað því að ég ætti eftir að vasast innan um líkamsparta og líffæri... skoða æðar, vöðva og allt því fylgjandi og vera virkilega að fíla það. .... og það þó að við hliðina á mér væri verið að kryfja 6 látna einstaklinga. Furðulegt. Ég er alltaf meira og meira að komast að því að stór hluti af ástæðunni fyrir því að ég ákvað að athuga hvort læknisfræðin væri eitthvað fyrir mig er sú að ég held að ég geti þetta ekki! Ég þó að ég geti ekki hlaðið allri þessari latínu inn í hausinn á mér kom ég sjálfri mér virkilega á óvart með þessu í dag. Ég er töff!

En jæja Krissi er komin í heimsókn og við ætlum að halda ekta hyggekvöld í okkar stíl....pizza og vidjó. ... sakna þess. Hef horft held ég á sjónvarpið í klukkustund- samanlagt síðan skólinn byrjaði!

posted by xxx @ 22:20