Dagurinn í dag :/
Mig langar að lýsa fyrir ykkur deginum mínum í dag!!
Ég: Góðan daginn... (rosa falskt bros.. alveg ægilega falskt og skakkt)
Tjaldgestur: Mig langaði að tjalda hérna ... hvað kostar það?
Ég: 600 kr fyrir hvern fullorðinn... (reyni að halda falska brosinu)
T: Já hvað kostar fyrir börn?
Ég: Ekkert (reyni enn að halda brosinu sem verður skakkara eftir því sem mínúturnar líða...... og hvort viðkomandi hafi virkilega ekki getað lesið það út úr því sem ég sagði fyrir 5 sek)
T: Já, .. hvar má tjalda?
Ég: (Á tjaldstæðinu maður).. nú já þú sérð það hérna á myndinni af tjaldstæðinu, þessu svæði höldum við fyrir hópa en annars er það frjálst svo framarlega sem það sé á tjaldstæðinu sjálfu.
T: og hvar er best að tjalda? Hvar er laust?
Ég: (aaarg!! ) Ég hef því miður ekki gengið um tjaldsvæðið nýlega í dag en þú skalt bara keyra inn á svæðið og athuga hvernig staðan er.
T: hvernig er veðrið á Hallormsstað?
Ég: (hvernig í andskotanum á ég að vita það????? ha?? hahahahaha??). Ég verð nú að viðurkenna að það veit ég ekki.
T: Já allt í lagi, ég ætla þá að taka eina nótt...við erum 2 fullorðin.
Ég: Já það eru þá (urrrrrr) 1200 kr
T: Veistu hvað það verður margt um helgina??
Ég: Það er ekki gott að segja.. en eitthvað fram yfir venjulega helgi þar sem það er verslunarmannahelgin... (láttu mig vera......) (skakka brosið er horfið... þjónstulundin er engin).
og auðvitað skilur viðkomandi eftir hurðina á skrifstofunni opna og það er hvasst úti og ég er á túr og mig langar í nammi og mig langar heim og ég nenni ekki að standa á fætur og ég er pirruð og nenni ekki að tala við fólk.. um TJALDSTÆÐIN. Það er að koma verslunarmannahelgin og ég er ekki að fara neitt... eitt né neitt.
posted by xxx @ 22:14
