fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Hjólaspól

Undanfarna viku hef ekki botnað upp né niður í því hvað það hefur tekið á fyrir mig að hjóla í skólann. Við erum að tala um það að ég þarf að hjóla upp nokkuð bratta brekku á lokasprettinum (jájá Árósar er eini bærinn á Danmörku sem er með brekku..alveg örugglega af því að ég bý þar). Og síðustu daga hef ég ekki getað hjólað upp brekkuna, heldur hef ég þurft að leiða hjólið. Og var virkilega búin á því að hjóla á jafnsléttu. Ekki alveg að fatta. Ég sem er byrjuð í ræktinni og svona. Farin að hnykla vöðva kl 6 á morgnana og ég veit ekki hvað og hvað. Svo tók ég mig til í gær og kom við á hjólaverkstæði (eitt af þúsund hérna í bænum) og pumpaði í dekkin. Haaaaa!ahhhh! Haldiði ekki að ég hafi flogið upp brekkuna núna í morgun. Það er betra að hafa loft í dekkjunum.

posted by xxx @ 18:55