mánudagur, maí 09, 2005

Barnið í sjálfri mér

Þegar ég labbaði heim eftir skóla í dag var rigning. Ég var illa skóuð- eins og það kallast. Ég var í kínaskóm. Enda náði ég ekki að taka nema örfá skref áður en ég var orðin blaut í fæturna. Ég ákvað því að nota tækifærið og leyfa barninu í sjálfri mér að njóta sín. Leyfði mér að skvampa í hverjum einasta polli sem á vegi mínu varð. Sleppti því reyndar á strikinu. En í öllum hliðargötunum stökk barnið í mér skríkjandi fram og ég endaði á því að verða rennandi blaut upp fyrir haus. Það er ekkert jafnhuggulegt og að klæða sig úr rennandi blautum fötunum þegar heim er komið í hlýja íbúðina og koma sér fyrir í náttfötum. Tylla sér því næst við skrifborðið og lesa um aðferðir í tilraunum í biokemi. ..svona rétt eftir að barnið hefur fengið sína útrás. Ég ætla aldrei að verða of fullorðin.

posted by xxx @ 20:17