Þreyttur dagur
Ég er svo þreyttur í dag. ... og ég veit eiginlega ekki afhverju. Kannist þið ekki við þessa daga þar sem engin orka er til staðar? Maður gengur um hálfsofandi allan daginn. Reynir til hins ýtrasta að gera það sem þarf að gera. Það eina sem kemst að er rúmið og hvenær sé hægt að fara að sofa. Einstaklega pirrandi þegar maður er búin að gera stór plön og ætlar sér svoooo mikið yfir daginn. Hugsa að ég fari bara að sofa núna. Vakna bara ÞEIM MUN fyrr í fyrramálið og reyni að klára eitthvað af þessum eðlisfræðidæmum sem ég var búin að gera svoooo stór plön um að gera. Það er nú það. Annars er fimmtudagur og það er að koma helgi.
..helgin verður róleg að mestu en þó smá plön.
Kaffihúsaferð á morgun. Guðríður í viðgerð og versla inn. Eitt stykki atvinnuviðtal.
Laugardagur til lesturs,sushi hjá Mary og partý hjá Kristine. Kannski í bæinn. Dunno.
Sunnudagur vonandi alls ekki þynnka. Lærilæri.
Annars gengur lífið sinn vanagang og ekki það stóra að gerast. Ekki það stórastóra. Varð annars pínu skotin um daginn,það er alltaf gaman. posted by xxx @ 20:26
