Helgin
Þá er ótrúlega skemmtilegri og velheppnaðri helgi að ljúka. Hún byrjaði eiginlega á fimmtudegi en þá sofnaði ég óvart með bækurnar upp í rúmi kl 20 um kvöldið. Geðveiki. Og til að kóróna þessa geðveiki vaknaði ég sjálf kl 5 á föstudagsmorgninum. Nú, þar sem ekkert er um að vera snemma á föstudagsmorgnum skellti ég mér upp á lessalinn í háskólanum. Var mætt þangað kl hálf 7. Hafði allt húsið út af fyrir mig. Ekki slæmt það. Síðar um daginn skellti mér á fredagsbar en þar hef ég ekki látið sjá mig í háa herrans tíð. Svo lá leiðin í pizzuparty hjá Signe og fest hjá Statskundskab med Mikael (drengurinn er að lesa statskundskab(stjórnmálafræði) og vildi kynna okkur læknanemunum fyrir tilvonandi stjórn landsins). Ég skemmti mér konunglega við að rifja upp barnaskóladagana þar sem dansað var við Ace of Base og svipaða tónlist. Inn á milli steig ég dans í takt við Robbie Williams. Danir eru óborganlegir ;) Þetta kvöld var ég þéruð og fékk að vita að það sæist á mér langar leiðir að ég væri íslensk. Fékk aldrei að vita afhverju og hvernig í anskotanum það væri hægt. Gaurinn vildi ekkert segja, sagði að það væri of klysjukennt. hm... En Mikael sem meðlimur framtíðarstjórnr landsins reyndi að koma með ýmsar skýringar sem dugðu skammt (sjónrmálamenn!!). Já sko þú ert dökkhærð og með brún augu... (já og er það dæmigert íslenskt? NEI) ..þú ert með nordiske andlitdrætti (já það hafa svíar, danir,norðmenn og færeyingar líka). Æji var þéruð. Það ættu fleiri að gera. Drottningu Danmerkur á að þéra. Það er eins og aðeins einn og einn dani sé að fatta það.
Í gær var svo reunion á Hadsten Höjskole. Svoooo gaman að sjá gömul andlit aftur.
Líka furðulegt að þegar ég var þarna skildi ég mun minni dönsku en ég geri í dag. Oft held ég að ég hafi verið að misskilja persónuleikana sem þessar persónur sem voru með mér þarna í skólanum höfðu að bera. Í það minnsta var ég að uppgötva snilldarhliðar á fólki sem ég hreinlega hafði ekki séð á þeim tíma. Hulunni létt.
Næsta vika verður næs. Kapsejladsen verður á miðvikudaginn en þá drekka námsmenn árósa bjór við tjörnina í háskólagarðinum, klæðast skrítnum búningum og keppa í róðri á litlum gúmmíbátum. Læknanemarnir eru vanir að vinna. Það eru líka við sem stöndum fyrir þessu þannig að auðvitað er það ekkert nema sjálfsagt. Höfum haldið gullna bekkeninu sem keppt er um ár eftir ár.
Á fimmtudaginn er svo frí...og þá er ekki langt í helgi. Það er alltaf helgi.
jæja, var að henda inn nokkrum nýjum linkum hérna til hliðar. Það eru þau Ína, Óskar og Svala læknanemar. Gerða eðlisfræðingur og Matta sem veit ekki alveg hvað hún er að gera í Danmörkinni. Hérna er svo linkur á heimasíðuna hjá félagi íslenskra læknanema.Nú svo eru það Ingó Páls húsvíkingur og Baldur skáti sem einnig er húsvíkingur. Krækiberið í pylsuhorninu er svo Hallan mín á Akureyri. Hún átti afmæli 28.apríl. Tillykke Halla! posted by xxx @ 11:25
