föstudagur, maí 06, 2005

Það er gott að pissa

Já ég fór á partý eftir kapsejladsen, svona eins og mér einni er lagið. Þrátt fyrir að ég hafi reynt að fínpússa stílinn minn undanfarið kemur litli sæti öskurapinn alltaf fram öðru hverju. Við hverju er að búast þegar maður er kominn af blóðheitum víkingum? Nei ég veit það ekki. Allavega ekki búast við mér sem dömu! Eitt sinn ekki dama, ávallt ekki dama. Erfitt að kenna villtum apa að sitja. Ég er enn að díla við timburmenn í dag. Þar að auki átti ég setningu kvöldsins sem var svona líka smart...."Jeg kan godt lide at tisse". Veit ekki alveg hvað ég átti við með þessu en var víst alveg í spreng á þessu talaða augnabliki. Gerir hlutina meira skiljanlega. Það er einmitt á þeim tíma sem manni finnst gott að pissa. Dónt bleim mæ self. Hæfir líka einstaklega vel þar sem ég var að byrja að lesa um nýrun í dag.

Annars bjargaði mamma hennar Guðnýjar þynnkudeginum og gerði hann að hinum besta degi. Þessi elska er nefnilega í heimsókn. Ýmis kraftaverk hafa litið dagsins ljós síðan hún gekk inn um dyrnar hérna á Dalgas. Til að mynda er komin ný ljóspera inn á baðherbergið. Við gellurnar höfum verið að dunda okkur við kertaljós inn á baði síðan í janúar. Æji það hefur bara verið býsna rómó. En ljósið er hins vegar í "guðs almáttugum góðum guð" velkomið eins og Eva Björk orðaði það. Aðrir tíðir gestir á Dalgas hafa notað önnur en álíka sterk orð yfir þetta kraftaverk.
Nú svo hefur töfrað hina ýmsa sjávar-og kjúklingaréttir fram úr ermunum. Konan er snilldarkokkur. Mér finnst gott að hafa eitt stykki galdramömmu á heimilinu.

posted by xxx @ 20:25