laugardagur, mars 26, 2005

Mauratúfa

Fyrst tetta; Nyjar myndir komnar.. bara átfélagid mitt ;)

og svo tetta...

Ja hvad er hamingja? Eg hef oft og mørgum sinnum pælt i tvi og hugsa ad flest allir adrir hafi gert slíkt hid sama. Vid lítum í kringum okkur og kíkjum adeins inn í líf náungans vid hlidina á okkur og ætli vid midum okkur ekki ósjálfrátt vid hann? Ætli hamingja okkar geti mælst í vidmidun vid náungann? Ad madur hafi tad nú adeins betra en Torvaldur í Framnesi og eigi tví ad prísa sig sæla. Er hamingjan fólgin í tví ad mennta sig, finna sér framtídarmaka, kaupa sér íbúd og eignast eitt eda tvø børn? Fara til útlanda annad hvert ár? Eyda helgunum í sumarbústad med fjølskyldunni? Borda hollan mat og fara í ræktina 5 sinnum í viku? Eda sitja á kaffihúsum og sladra um vidburdi lidinna helgar? Hver var med hverjum tarna.. hver hélt fram hjá hverjum á hinum stadnum?

Er hamingjan fólgin í tví ad njóta teirra stunda tar sem manni lídur ekki illa? Tegar ástin bankar á dyrnar hjá manni? Tegar launasedillinn er hærri en búist var vid? Tegar nýji bíllinn er enn nýr? Tegar átrøskunin hefur ekki yfirhøndina? Tegar tunglyndid er í rénun? Tegar vid eigum nóg fyrir útgjøldum mánadarins og getum jafnvel leyft okkur ad fara í bíó yfir helgina? Haldid í høndina á kærastanum/manninum/vidhaldinu? Tegar Alma litla segir fyrstu ordin eda hlær í fyrsta skiptid?

Er hamingjan kannski einmitt tad sem vid upplifum rétt ádur en vid steypumst nidur í hyldýpid? Tegar fallid er einmitt sem mest?

Er hamingjan kannski hinn gullni medalvegur sem adeins hin gullna medalmanneskja finnur?

Er Jón sem á einbýlishús í Hrísholtinu í hamingjusamari en Haukur sem sefur med pappakassa yfir sér á 5th avenue á Manhattan? Eda..er hann tad ekki af tví ad konan hans heldur fram hjá honum og sonur hans er í dópi?

Er mín hamingja fólgin í tví ad sitja á lessalnum og reikna dæmi vardandi veggspennu, trýsting og beygjumoment? Er hún kannski fólgin í enn einni ferdinni á Socialinn eda Svays? Bakpokaferdalagi ein um asíu? Leitinni ad sjálfri mér?

Er hamingjan tad ad vera sátt? Innri ró. Ad vera sáttur...er tad tad sama og uppgjøf? Eda tydir tad ad leitinni ad hamingjunni se einfaldlega lokid tvi nirvana se nad? Er hrædslan vid daudann ta horfin?

Stundum minnir tessi litli heimur mig á stóra mauratúfu..... med øllum tessum bílum, stressi og eilífdarlífskapphlaupi. Ótrúleg skipulagning en samt sem ádur ytri og innri kaos. Ég tek tátt í tessu af fullum krafti trátt fyrir ad ég reyni ad telja mér trú um ad ég sé yfir tad hafin. Ad hugsunarhátturinn minn sé ødrvísi. Ég er eftir allt saman bara ein af maurunum.

posted by xxx @ 12:39