Næturlífið
Í fyrrinótt dreymdi mig að ég væri nýbúin að eignast barn. Það var stelpa. Svona líka myndarleg. Með dökkt hár og stórt bros á vörunum. Mér fannst hún voða sæt og elskaði hana út af lífinu. Fann greinilega fyrir þeirri tilfinningu. En svo álpaðist ég til að skilja hana eftir í íþróttahöllinni á Húsavík því ég þurfti að hlaupa og sækja eitthvað. Það var vetur. Ég vaknaði áður en ég komst til baka.
Í nótt dreymdi mig að ég gifti mig. Í draumnum náði ég líka að skilja. Ég veit ekki hver var maðurinn.
Næturlífið mitt er viðburðaríkt. Get ekki sagt annað. posted by xxx @ 21:04
