sunnudagur, ágúst 28, 2005

..og hvað svo?

Þá er maður kominn heim á baunina. Búin að halda gleðilega menningu og hitta allt frábæra fólkið á Íslandi. Átti svooo góðan tíma. Ætla ekki að lýsa honum með orðum þetta var svo skemmtilegt allt saman. Læt eitt *andvarp* nægja.

Renndi inn á fjárhúsin í nótt, inn á dalgas kl 2. Pakkaði upp úr öllum töskunum og skellti mér svo í bæinn kl 3. Festugen er að byrja. Margir í bænum. Feisaði meira að segja fyrrverandi drama og alles. Dramað hrópaði á eftir mér og sagði hæ. Það þótti mér vænt um. Þá verður það minna drama. Glöð,glöð,glöð.

Hlakka til að hitta Mikaelinn minn. Getikkibeðið.

Svo er bara að bretta upp ermarnar og undirbúa sig fyrir það að eiga ekkert líf. Samt innihaldsríkt ekkert líf. Hlakka pínu til. Fæ samt martraðir á nóttunni. Það er allt að gerast í hausnum á mér.

Glædelig festuge :)

posted by xxx @ 12:46