sunnudagur, október 16, 2005

Rjúpur og rútína

Heyrist rjúpnaveiðin vera byrjuð á Íslandi.. í það minnsta hrynja yfir mig sms þessa dagana um hvernig veiðin gangi. Hún byrjaði í gær, er það ekki? Mér finnst rjúpur góðar. Fékk mína rjúpnajólaveislu þegar ég var á landinu í ágúst. Ætli þetta verði ekki fyrstu jólin sem ég fæ ekki rjúpur. Og líklega fyrstu jólin sem ég eyði án fjölskyldunnar. Tjah.. og fyrstu jólin sem ég veit ekki hvernig verða. En mér finnst það upplifun. Fólk fórnar höndum þegar ég tjái mig um það að ég ætli að vera hérna um jólin. Eins og það sé ekki hægt að halda jól annars staðar. Og ég meina, eins og það sé nauðsynlegt að halda jól(skaut ég mig í fótinn þarna?). Ég er búin að halda jól í ár;)

Komst að því í dag í mínum þönkum á lessalnum að lífið mitt er bara orðið ansi rútínukennt. Endist yfirleitt ekki í þeim ham lengi. Yfirleitt kem ég mér í eitthvað klandur ómeðvitað til að koma einhverri nýrri kaós af stað. Þetta er hins vegar búið að haldast svona lengi..lengi, 2 mánuði held ég bara. Vonandi helst það fram í janúar.

Rútínana mín er þessi. Vakna á milli 6:30 og 7:00. Dagurinn fer í að lesa. Svo á ég yfirleitt tvö kærastakvöld í viku. Eitt arnarskvöld með góðum mat. Svo á ég held ég að meðaltali tvö leskvöld í viku og eitt qualitykvöld fyrir sjálfa mig. Skiptingin er ekki alltaf svona en yfirleitt.. ja yfirleitt. ..og þá er ég búin að blogga um allt það sem hefur gerst í lífinu mínu síðustu vikurnar og gerist næstu vikurnar.

Þetta var einstaklega spennandi blogg.

posted by xxx @ 18:44