þriðjudagur, júní 20, 2006

algkh

Tad er próf ekki á morgun, heldur hinn. Og ég er ekkert stressud. Eda svo ad segja. Samt kann ég ekki shit og er enn ad slá upp í øllum bókum. Get ekki lært tessar 130 litlu lífverur utan ad. En mér er einhvern veginn alveg sama. Samt er tetta ógislea spennandi. Hins vegar finnst mér svolítid annad meira spennandi. Ég er ad komast í sumafrí. Vonandi næ ég tessu bara. Gódi Gud, leyfdu mér ad ná. Hlakka svooo til! Arnar kíkti í heimsókn til mín hérna á medicinerhuset i gærdag med ís handa mér. Ég var ekkert smá ánægd. Sagdi vid alla ad Arnar hefdi komid med bjór. Sem hann hafdi jú ekki gert. Tetta rann eitthvad til í hausnum á mér. Is og øl eru ekki einu sinni lík ord. Stórfurdulegt. Ég er med bjór á heilanum. Opna bjór eftir prófid á fimmtudaginn. Annad hvort til ad drekkja sorgum eda ad djamma. Nei.. djamma sama hvad gerist. Buin ad lesa nogu mikid í tad minnsta svo ég á allavega skilid ad ná, annars er ekkert réttlæti til. Svo rann upp fyrir mér í gærkvøldi medan ég var ad glíma vid Treplonema pallidum ad ég flýg til Íslands á tridjudaginn. Veit ekki hvort tad er tad sem ég hlakka til eda hvad er málid. Er allavega med bullandi fidrildi í maganum. Kannski er tad bara løngunin í tad ad gera eitthvad annad en ad grúska í bókum sem veldur tessum hamskiptum hjá mér. Búin ad fá nóg.

posted by xxx @ 13:56